fbpx

Atferlisíhlutun fyrir börn með þroskafrávik

- Uppeldi og kennsla

Yfirlit

 - Námskeið i samstarfi við Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins.

Hverjum er námskeiðið ætlað?
Ætlað aðstandendum og starfsfólki sem kemur að skipulagningu og framkvæmd heildstæðrar atferlisíhlutunar fyrir börn með þroskafrávik í leikskólum.

Efnisskrá

Lýsing:
Farið er yfir helstu hugtök og aðferðir hagnýtrar atferlisgreiningar, kennslu nýrrar færni og hvernig unnt er að fyrirbyggja og minnka óæskilega hegðun í vinnu með börnum á leikskólaaldri.

Ennfremur er fjallað um innihald og áherslur með hliðsjón af getu barnsins, daglega framkvæmd og hlutverk ráðgjafa. Foreldrar koma og segja frá þátttöku sinni í heildstæðri atferlisíhlutun. Námskeiðið byggist á fyrirlestrum, umræðum og myndböndum af börnum á mismunandi getustigum.

Markmið
Að þátttakendur:

  • þekki undirstöðuþætti heildstæðrar atferlisíhlutunar
  • þekki leiðir til að fyrirbyggja og minnka óæskilega hegðun barna með þroskafrávik
  • þekki til þeirrar reynslu af skipulagi og framkvæmd atferlisíhlutunar í leikskólum hér á landi

Námskeiðið er tveir dagar - 4. og 5. febrúar kl. 9-16.

Kennarar

Bára Kolbrún Gylfadóttir sálfræðingur og Katrín Sveina Björnsdóttir atferlisfræðingur.

Kostnaður

49.000 kr. Aðstandendur fá 50% afslátt.

Upphafsdagur

There a no startdates for this programme yet.

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða