-
Námsskeiðs gjald
kr 50.000
Yfirlit
Námskeiðið er 5 ECTS ein, á meistarastigi og eru forkröfur grunnnám úr háskóla.
Efnisskrá
Námskeiðslýsing:
Viðfangsefni námskeiðs eru yngstu börn leikskólans með áherslu á aldurinn 0–3 ára. Fjallað er um nýjar rannsóknir er varða yngstu börnin, sérstaklega er hugað að rannsóknum um heilann og rannsóknum um tengsl umönnunar og tengslamyndunar. Kenningar og rannsóknir er tengjast fyrstu 1000 dögunum eru skoðaðar. Þroski og þarfir yngstu barnanna í leikskólanum eru til umfjöllunar. Dagskipulag og skapandi starf með yngstu börnunum er sérstaklega skoðað. Nemendur fá innsýn í hvernig skipuleggja má leikskólastarf 0–3 ára barna á öllum námssviðum leikskóla þar sem áhersla er lögð á samþættingu og alhliða þroska.
Hæfniviðmið:
Að námskeiðinu loknu skal nemandi:
- þekkja rannsóknir á heila og kenningar um tengslamyndun og geta nýtt sér þær við skipulag starfs með yngstu börnunum,
- geta rökstutt mikilvægi umönnunar í starfi með yngstu börnunum og hvernig best er að hátta henni til,
- geta skipulagt örvandi og fjölbreytt námsumhverfi fyrir 0–3 ára börn,
- geta skipulagt starf 0–3 ára barna þar sem öllum námssviðum leikskóla eru gerð skil.
Námsefni: Mary Jane Maguire-Fong: Teaching and Learning with Infants and Toddlers Where Meaning-Making Begins, Teachers College Press 2014.
Ann Lewin-benham: Infants and Toddlers at Work: Using Reggio-Inspired Materials to Support Brain Development, Teachers College 2010.
Námsmat: Verkefni. Einnig er hægt að ljúka námskeiðinu án eininga með staðfestri þátttöku.
Dagskrá
Kennslulotur:
24. jan. kl. 8:10-12:30
28. feb. kl. 8:10-12.30
27. mars kl. 8:10-12.30
Kennarar
Umsjónarkennari: Kristín Dýrfjörð dósent kennaradeild dyr@unak.is
Planning
Kostnaður
Verð: 50.000 kr.
Upphafsdagur
There a no startdates for this programme yet.
Áhugavert námskeið sem vert er að skoða