fbpx

Allt um leiðsögunámið

Leiðsögunámið er sniðið að þeim sem vilja búa sig undir starf leiðsögumanns á Íslandi. Áhersla er á almenna þekkingu, náttúruvernd, sjálfbærni, öryggi og íslenskar aðstæður. Námið tekur mið af Evrópustaðli  ÍST EN 15565:2008 (Tourism services – Requirements for the provision of professional tourist guide training and qualification programmes).

í janúar 2023 fór af stað í fyrsta sinn leiðsögunám með blönduðu sniði, fjarnám, lotur og verklegt nám. Áður hafði leiðsögunámið verið kennt við Símenntun Háskólans á Akureyri í staðarnámi.

Námið spannar þrjár annir sem gefur náminu aukið vægi þar sem sumarið er notað undir verkefnavinnu tengda meðal annars gróðri og fuglum, sem og að nemendum er gefinn kostur á því að nota sumarið á milli anna 1 og 2 í valkvætt verknám.

Verklegur hluti námsins er í samstarfi við SBA-Norðurleið.

Þessa stundina er námið í gangi og lýkur því vorið 2024. Nýtt nám fer af stað í janúar 2025. Mikill áhugi er á náminu enda eftirspurnin eftir leiðsögumönnum mikil á Íslandi í dag. Möguleikar til starfs eftir nám og jafnvel á meðan á námi stendur eru miklir. Ef þú vilt skrá þig á lista til að komast í námið í janúar 2025, endilega sendu okkur póst á smha@smha.is

Nemendur í vettvangsferð að vori
Nemendur í vettvangsferð að vori

Fyrirkomulag fjarnáms

  • Námið er að mestu fjarnám og spannar þrjú misseri. Það er skipulagt þannig að mögulegt er að sinna því samhliða starfi og búa hvar sem er á landinu.
  • Á hverju misseri verða tvær staðarlotur á Akureyri frá fimmtudegi til sunnudags sem nemendur eiga að mæta í.
  • Vettvangs- og æfingaferðir eru skipulagðar yfir námstímann og endar námið á sex - sjö daga ferð um landið. Gert er ráð fyrir 100% þátttöku í þessum ferðum.

Inntökuskilyrði

  • Tuttugu ára aldurstakmark.
  • Stúdentspróf, sambærileg menntun eða raunfærnimat.
  • Gott vald á íslensku.
  • Standast inntökupróf í því tungumáli sem umsækjandi hyggst nota í leiðsögn og skólinn getur boðið upp á þjálfun í.

Inntökupróf í erlendum tungumálum verða haustið 2024 og kostar hvert próf 12.000-15.000 kr. og hægt er að þreyta próf í fleiri en einu tungumáli.

Með umsókn þarf að fylgja stutt yfirlit yfir náms- og starfsferil.

Nemendur við Víðimýri í  vettvangsferð
Nemendur við Víðimýri í vettvangsferð

Kennslutilhögun

Kennslutilhögun

  • Námið spannar þrjú misseri og er skipulagt þannig að mögulegt er að sinna því samhliða starfi og búa hvar sem er á landinu.
  • Á hverju misseri verða tvær staðarlotur á Akureyri frá fimmtudegi til sunnudags sem nemendum er ætlað að mæta í.
  • Vettvangs- og æfingaferðir eru skipulagðar yfir námstímann og endar námið á sex daga hringferð um landið. Gert er ráð fyrir 100% þátttöku í þessum ferðum.

Leiðsögunám Símenntunar Háskólans á Akureyri 2023-2024

Ísland alla leið

Námið skiptist í 3 annir – vorönn 2023, haustönn 2023 og vorönn 2024

Fjar- og staðarkennsla

Inntökupróf í tungumáli: Fer fram í nóvember. Nánar auglýst síðar.

Skipting námsgreina á annir – athugið að áfangar er misstórir

 

Birt með fyrirvara um breytingar

 

Vorönn 2023

Haustönn 2023

Vorönn 2024

Kynning á Canvas, námstækni, heimildavinnu og hagnýtum vinnubrögðum, fyrirkomulagi náms og pistlagerð

SAG Íslandssaga

JAR Jarðfræði Íslands

LÍF-dýr (fuglar, spendýr, sjávardýr)

LÍF-gró (gróður, uppgræðsla, umhverfismál)

 

LEI  Leiðsögn

VIN Vinnustofa í pistlagerð og þjálfun í tungumálum

KYF Kynnisferðir með reyndum leiðsögumönnum

 

VET Vettvangsferðir

  • Skagafjörður
  • Goðafoss-Mývatn

 

 

SAM Íslenskt samfélag

ÍSL Ísland alla leið (stór áfangi)

 

 

 

 

 

 

VIN vinnustofa í pistlagerð og þjálfun í tungumálum

KYF Kynnisferðir með reyndum leiðsögumönnum

 

VET Vettvangsferðir

  • Akureyri – Eyjafjörður fram
  • Demantshringur
  • Tröllaskagi - austan

 

 

MEN Íslensk menning

NÁV Náttúruvá og veður

ÍFR Ísland framtíðarinnar

FER Ferðaþjónusta

FYH Fyrsta hjálp 1 (20 klst)

 

 

 

 

 

LEI  Leiðsögn

VIN Vinnustofa í pistlagerð og þjálfun í tungumálum

KYF Kynnisferðir með reyndum leiðsögumönnum

 

VET Vettvangsferðir

  • Æfingarferð
  • Hringferð 6-7 dagar

 

 

Leiðsögu1
Glaumbær 2023

Kennarar

Fjölmargir kennarar/leiðsögumenn/fyrirlesarar koma að náminu, hver og einn sérfræðingur á viðkomandi sviði.

Frekari upplýsingar veitir Margrét K. Jónsdóttir. Tölvupósturinn hennar er mkjonsd@simnet.is

Kostnaður

Heildarverð námsins 2023 var 750.000 kr. en nemendur greiða sjálfir fyrir mat í ferðum og gistingu í hringferð um landið. Námsgögn, utan námsefnis frá kennurum, eru ekki innifalin í skólagjöldum.

Ætla má að kostnaður námsins sem fer af stað í janúar 2025 verði örlítið hærri en hann var 2023.

Semja má um greiðslufyrirkomulag áður en nám hefst t.d. skipta greiðslum eftir misseri eða greiðsludreifingu til allt að 36 mánaða.

Vinsamlega athugið að ekki er hægt að fá endurgreitt ef nemandi ákveður að hætta í námi á námstíma.

Styrkir:
Vakin er athygli á að ýmis stéttarfélög og vinnuveitendur veita góða námsstyrki. Einnig er vakin athygli á að hjá Vinnumálastofnun eru upplýsingar og ráðgjöf varðandi margvísleg námsúrræði fyrir einstaklinga á atvinnuleysiskrá.