fbpx

Að stjórna fólki

- Stjórnun og færni

Yfirlit

Stjórnun starfsmanna er einn veigamesti þátturinn í árangri vinnustaða. Vægi stjórnunar er að aukast og áskoranir stjórnenda eru margar. 

Ávinningur:

  • Innsýn í eigin stjórnunarstíl.
  • Þekking á góðri hagnýtri kenningu til að lesa í aðstæður.
  • Færni í að beita mismunandi stjórnunarstílum.
  • Betri samtalstækni og lipurð og öryggi í samskiptum.
Hagnýtar upplýsingar

Fjöldi kenninga er til um áhrifaríka stjórnun. Ein lífseigasta þeirra er kenningin um aðstæðubundna stjórnun eftir Hersey & Blanchard frá árinu 1969 en hún er notuð í stjórnendaþjálfun um allan heim. Styrkleiki kenningarinnar liggur í einfaldleikanum og áherslunni sem lögð er á hlutverk náms. Samkvæmt kenningunni hafa aðstæður stjórnanda og starfsmanns áhrif á hvaða stjórnunarstíl sé best að beita. Stundum þarf að taka fast í taumana, stundum fær starfsmaður lausan tauminn og í önnur skipti er nóg að ræða málin. Allt ræðst af aðstæðum og því verður stjórnandi að vera vakandi fyrir því í hversu miklu mæli hann skiptir sér af.

Námskeiðið hentar öllum þeim stjórnendum sem vilja styrkja sig í starfi og taka þátt í uppbyggilegri umræðu um hlutverk stjórnenda.

Fyrirkomulag fjarnáms

Tími: Mið. 27. okt. kl. 9-15:30

Námskeiðið er í fjarkennslu í zoom.

Efnisskrá

Á námskeiðinu er fjallað um hlutverk og ábyrgð stjórnandans. Þátttakendur svara spurningalista sem segir til um stjórnunarstíl þeirra. Farið er í hlutverkaþjálfun þar sem mismunandi stjórnunarstílar eru æfðir eins og að beita mikilli stýringu, ráðgefandi stjórnunarstíl og felandi stjórnunarstíl (delegation). Stuðst er við dæmi sem þátttakendur eru að glíma við í daglegu starfi.

Meðal þess sem tekið er fyrir á námskeiðinu:

  • Stjórnunarstílar og hlutverk stjórnandans.
  • Hvatning og starfsánægja.
  • Stjórnandinn sem fyrirmynd.
  • Frammistöðusamtöl og að veita endurgjöf á frammistöðu.
Dagskrá

Kennsluaðferðir:

  • Verkefni.
  • Fyrirlestrar.
  • Hæfnisþjálfun.
  • Umræður.
Kennarar

Eyþór Eðvarðsson, þjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun ehf.

Upphafsdagur

There a no startdates for this programme yet.

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða