fbpx

Aukin fundarfærni og betri umræður

- Stjórnun og færni

Yfirlit

Góð umræða þarf að einkenna fund þar sem ná þarf góðri niðurstöðu. Því betri umræður þeim mun betri ákvarðanir og meiri líkur eru á því að farið verði eftir því sem var rætt og ákveðið.  Fundarstjóri ber ábyrgð á umræðunni, sem þýðir að virkja þarf þátttakendur til umræðu, spyrja spurninga, halda hlutleysi, draga saman umræðuna og athuga skilning, höggva á hnúta, gæta að tímanum, skerpa á ólíkum skoðunum og huga að orðalagi og svipbrigðum.  

Margt smátt gerir góðan fund og eitt er víst að þetta lærist helst með því að funda. Oft eru slæmir fundir góðir til að minna á að það er hægt að gera betur.

Hagnýtar upplýsingar

Í þessari vinnustofu verður fundað út í eitt og þátttakendur finna á eigin skinni hvernig hægt er að stórauka árangur umræðna á fundum. Þátttakendur leysa fyrst verkefni hver fyrir sig og síðan sem hópur. Verkefnin sýna fram á nauðsyn þess að fundarstjóri sé virkur í að stýra umræðum. Eftir hverja æfingu er rætt hvernig gekk og farið yfir hvernig hefði verið hægt að ná enn meiri árangri.

Námskeiðið er skemmtilegt, krefjandi og afar hagnýtt.

Fyrirkomulag fjarnáms

Fimmtudaginn 17. nóvember kl. 13-16 í húsakynnum Háskólans á Akureyri eða í fjarkennslu á Zoom. 

Efnisskrá

Meðal þess sem er tekið fyrir á námskeiðinu:

  • Hlutverk fundarstjóra
  • Spurningatækni
  • Fyrirfundir, eftirfundir og hliðarfundir
  • Bandalög og „trúbræður“
  • Einræði, tvíræði, lýðræði og sýndarlýðræði

Kennsluaðferðir:

  • Hlutverkaæfingar
  • Hópverkefni
  • Umræður
  • Fyrirlestur
Kennarar

Eyþór Eðvarðsson, stjórnendaþjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun.

Kostnaður

Verð: 21.500 kr. 

Upphafsdagur

There a no startdates for this programme yet.

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða