-
Námsskeiðs gjald
kr 31.000
Yfirlit
Vilt þú hafa betri yfirsýn yfir þín fjármál? Hvernig skattamálum er háttað? Hvað á að telja fram til skatts og hvað ekki? Hvernig virkar þessi lífeyrir og hvaða kostnað get ég sett á móti tekjum?
Þá er þetta námskeið fyrir þig. Námskeiðið er tekið upp fyrirfram og þú getur því horft á fyrirlestrana þegar þér hentar. Að auki verða fjórir fjarfundir með kennara þar sem farið verður yfir allt sem viðkemur skattamálum og heimilisbókhaldi.
Að námskeiði loknu á nemandi að kunna skil á:
- Finna þær upplýsingar sem hann þarf hjá fjárhagsstofnunum og fyrirtækjum, á netinu og í persónu, af öryggi.
- Skilið flest þau hugtök sem viðkoma umsjón með eigin fjármálum.
- Sett upp einfalt heimilisbókhald og fjárhagsáætlun.
- Borið saman verð og tilboð og fundið leiðir til sparnaðar í eigin lífi.
- Skilað eigin skattskýrslu.
Hagnýtar upplýsingar
Námsefnið er tekið upp fyrirfram. Á þriggja fyrirlestra fresti þurfa nemendur að svara léttri könnun úr efninu til að geta farið áfram í næstu fyrirlestra. Þetta er eingöngu gert til að festa efnið betur í minni, en ekki hugsað sem námsmat.
Fyrirkomulag fjarnáms
Námskeiðið fer allt fram á kennsluvefnum Canvas. Nemendur hafa aðgang að kennara á meðan á námskeiðinu stendur.
Að auki verður einn fjarfundur í viku þar sem nemendur geta spurt kennarann frekar út í námsefnið.
Námskeiðið er frá 5. feb - 4. mars. Fjarfundirnir fara fram á fimmtudögum kl. 20.
Efnisskrá
Námskeiðslýsing
Tilgangur námskeiðsins er að auka skilning nemenda á fjárhag sínum og veita yfirsýn, að auka sjálfstraust þeirra og áhuga á að læra á kerfið, kenna sparnað og auka vitund nemenda um sínar samfélagslegu skyldur.
Atriðin sem farið verður yfir eru:
1. Heimilisbókhald og fjárhagsáætlun: Kennt á Excel, farið yfir aðalverkefni námskeiðsins ofl.
2. Verslun og fjárhagur í samböndum: Tollar og aðflutningsgjöld þegar pantað er á netinu, samanburður á þjónustu, sparnaður, samsköttun, stofnun og slit sambúðar/hjónabands o.fl.
3. Bankaþjónusta: Húsnæðis-, bíla- og námslán, verð- og óverðtryggð lán, vextir, gjöld o.fl.
4. Stéttarfélög og tryggingar: Félagsgjöld, sjóðir og styrkir. Almannatryggingar, atvinnuleysi, skyldutryggingar og réttindi við áföll ofl.
5. Lífeyrir: Skyldu- og viðbótarsparnaður, hvað gerist við ellilífeyrisaldur, erfðamál o.fl.
6. Launþegi: Launaseðillinn, réttindi og skyldur vinnuveitandans gagnvart launþega o.fl.
7. Verktaki: Skil á reiknuðu endurgjaldi, frádráttarbær gjöld, virðisaukaskattur o.fl.
8. Skattur: Skattskýrsluskil, álagningarseðillinn, skattþrep, verð- og barnabætur, meðlag o.fl.
Kennarar
Smelltu á myndina til að sjá nánari upplýsingar um kennarann.
Upphafsdagur
There a no startdates for this programme yet.
Áhugavert námskeið sem vert er að skoða