-
Námsskeiðs gjald
kr 24.000
Yfirlit
Markmið námskeiðsins er að veita starfsfólk heilbrigðis-, félagsþjónustu og öðrum fagaðilum sem vinna með fjölskyldum fræðslu um einkenni og afleiðingar heimilisofbeldis.
Námskeiðið fer fram með fyrirlestrum og umræðum þátttakenda.
Hagnýtar upplýsingar
Fjallað er um æskileg viðbrögð þegar grunur um heimilisofbeldi kviknar og/eða þegar fólk segir frá slíkri reynslu. Hvernig hægt er að „opna dyrnar“ fyrir mögulegum vinnubrögðum varðandi slík mál almennt.
Fyrirkomulag fjarnáms
Námskeiðið er í fjarkennslu með zoom.
Efnisskrá
Efnistök námskeiðsins:
- Einkenni og afleiðingar heimilisofbeldis – merkin sem eiga að kveikja á viðvörunarbjöllunum
- Einkenni og langtímaafleiðingar ofbeldis í æsku
- Hvernig vekjum við máls á gruni um ofbeldi og/eða opnum dyrnar fyrir umræðunni
- Mikilvægi þess að dæma ekki, vera til staðar og hlusta án þess að „taka til ráða“
- Hvað er í boði fyrir þolendur og gerendur – að vita um og geta kynnt úrræðin fyrir skjólstæðingum
- Hvernig við kynnum og virðum tilkynningarskyldu til barnaverndar
Dagskrá
Tími: Miðvikudaginn 23. feb. kl. 13-17.
Kennarar
Ingibjörg Þórðardóttir félagsráðgjafi MA, og með diplómanám frá Bretlandi í ráðgjöf og meðferð með fjarþjónustu (online counselling and psychotherapy). Hún hefur langa reynslu af því að vinna með þolendum ofbeldis og aðstandendum þeirra meðal annars í Kvennaathvarfinu, Stígamótum og Aflinu á Akureyri. Ingibjörg hefur haldið sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir konur og stúlkur, og að auki haft með höndum ýmiss konar ráðgjöf fyrir einstaklinga og fjölskyldur. Ingibjörg rekur félagsráðgjafarstofuna Hugrekki – ráðgjöf og fræðslu, fyrir þolendur ofbeldis auk allrar almennrar félagsráðgjafar. Þá er Ingibjörg einnig frumkvöðull í því að bjóða félagsráðgjöf í gegnum netið.
Kostnaður
24.000 kr.
Umsagnir um námskeið
- Að þekkja einkennin og hvað eigi að gera við upplýsingarnar.
- Komin með góða yfirsýn og nokkur tæki til að vinna við málaflokkin.
- Betri skilning á heimilisofbeldi og hvernig hægt er að bregðast við.
- Upplifun á eðli og umfangi heimilisofbeldis.
- Ég lærði ótrúlega mikið á þessu námskeiði eins og hvernig lesa megi í hegðum, áhættuhegðum barna, hvaða verkfæri er hægt að nýta, um ofbeldishringinn, um valdeflingu og hvað þolendur vilja fá frá fagfólki.
Upphafsdagur
There a no startdates for this programme yet.
Áhugavert námskeið sem vert er að skoða