fbpx

Inngangur í leikjaforritun

- Forritun og tölvur

Yfirlit

Á þessu námskeiði verður fjallað um GDScript forritunarmálið og því beitt ásamt Godot leikjavélinni til að skapa tölvuleiki. Þetta námskeið hentar vel sem undirbúningur fyrir nemendur á leið í tölvunarfræði við HA og líka fyrir alla aðra sem hafa áhuga á að læra grunnatriði leikjaforritunar. Því er ekki gert ráð fyrir að þátttakendur hafi þekkingu á þessu viðfangi fyrir námskeiðið.

ATH: Hægt er að taka námskeiðið eitt og sér eða samhliða námskeiðunum  Inngangur í almenna forritun, Inngangur í vefforritun, Inngangur í heim gagnagrunna, NodeJS bakendaforritun, React framendaforritun og Unity leikjaforritun.

Fyrirkomulag fjarnáms

Námskeiðið er að fullu í fjarnámi

Efnisskrá

Kennsluefnið verða myndbönd á íslensku, glærur, verkefni og annað hjálparefni á kennsluvef HA. Nemendur munu hafa aðgang að umræðuvefnum Discord þar sem þeir geta sent inn spurningar og fengið aðstoð frá leiðbeinanda og samnemendum. Allar verkefnalausnir eru í formi myndbanda og einnig verður allur kóði námskeiðsins aðgengilegur.

Gert er ráð fyrir að fólk eyði a.m.k. 5 tímum á viku í námskeiðið.

Dagskrá

Námskeiðið er alls 3 vikur.

Kennarar

Umsjónamaður: Ólafur Jónsson – Verkefnastjóri tölvunarfræðináms við HA
Kennari: Rúnar Vestmann – Nemandi í tölvunarfræði.

Kostnaður


Ath. Fyrirvari er um að námskeiðið getur fallið niður ef þátttaka er ekki nægileg.

Upphafsdagur

There a no startdates for this programme yet.

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða