Íslenskar lækningajurtir, söfnun þeirra, verkun og notkun
- Heilbrigðis og félagsvísindi
Yfirlit
Á námskeiðinu verður fjallað um algengar íslenskar drykkjar- og lækningajurtir og leiðbeint um söfnun þeirra, verkun og notkun. Stiklað verður á stóru í sögulegu samhengi og áhersla lögð á sjálfbærni og virðingu við náttúruna. Söfnun jurta í fögru umhverfi er ánægjulegt og lærdómsríkt viðfangsefni og kjörið fyrir samhentar fjölskyldur og einstaklinga unga sem aldna.
- Fjallað um tíu algengar íslenskar lækningajurtir sem um aldir hafa verið nytjaðar og taldar viðhalda og efla heilbrigði
- Leiðbeiningar varðandi söfnun, verkun og geymslu jurtanna
- Tilsögn í að útbúa jurtate og heilsueflandi grasaseyði
- Uppskrift og tilsögn í að elda hvannasúpu
- Innsýn í þróun og sögu grasalækninga og nýjar rannsóknir sem styðja reynslu forfeðranna
- Leiðbeiningar um hvernig nytja má íslensk grös án þess að ganga á gjafir jarðarinnar
- Leiðbeiningar um hvar megi afla frekari upplýsinga um íslenskar drykkjar- og lækningaplöntur
Kennarar
Steinn Kárason er M.Sc. í umhverfisfræðum og rekstrarhagfræði, B.Sc. í viðskiptafræði og er garðyrkjufræðingur.
Planning
Laugardaginn 16. mars kl. 9:30-12 í stofu L101 á Sólborg.
Kostnaður
10.000 kr.
Upphafsdagur
There a no startdates for this programme yet.
Áhugavert námskeið sem vert er að skoða