fbpx

Krakkaspjall

- Miðstöð Skólaþróunar

Yfirlit

Krakkaspjall er samræðu- og samskiptaverkefni ætlað nemendum á yngsta- og miðstigi grunnskóla. Verkefnið samanstendur af 10 samræðu- og samskiptafundum og er hver fundur 40-60 mínútna langur. Á fundunum hittast krakkahópur og samræðustjóri og taka þátt í fjölbreyttum samræðu- og samskiptaverkefnum.

Meginmarkmið Krakkaspjalls er að þátttakendur þjálfast í og læri að taka þátt í samræðum og byggi undir hæfni sem nýtist þeim í daglegum samskiptum. Einn samskipta- og samræðufundur er helgaður hópeflisleikjum og níu fundir fela í sér:                       

  • Viðfangsefni/lykilspurningu
  • Spjall um viðfangsefni
  • Leik og/eða verkefnavinnu
  • Samantekt

Krakkarnir setja sér markmið á fundunum og vinna að því markmiði á milli funda. Sett eru samræðuviðmið með krökkunum. Viðmiðin hafa það hlutverk að efla gæði samskiptanna og samræðnanna. Verkefnið fellur vel að lykilhæfniviðmiðum Aðalnámskrár grunnskóla.

Hagnýtar upplýsingar

Markhópur:
Grunnskólakennarar á yngsta- og miðstigi og náms- og starfsráðgjafar

Lýsing:
Krakkaspjall er samræðu- og samskiptaverkefni ætlað strákum og stelpum á yngsta- og miðstigi grunnskóla. Verkefnið samanstendur af 10 samræðu- og samskiptafundum og er hver fundur 40-60 mínútna langur. Á fundunum hittast krakkahópur og samræðustjóri og taka þátt í fjölbreyttum samræðu- og samskiptaverkefnum.


Markmið:
Að loknu námskeiði hafa

þátttakendur:

  • öðlast þekkingu á fræðilegum grunni verkefnisins
  • öðlast leikni til þess að leiða nemendahóp í gegnum verkefnið
  • fengið verkfæri sem nýtist þeim í samræðu- og samskiptavinnu með nemendum

nemendur:

  • öðlast leikni í tjáningu og miðlun
  • haft tækifæri til þess að beita skapandi og gagnrýnni hugsun
  • haft tækifæri til þess að efla sjálfstæði sitt og samvinnu
  • fengið tækifæri til þess að nýta miðla og upplýsingar
  • eflt sjálfmynd sína

 foreldrar:

  • fengið tækifæri til þess að fylgjast með viðfangsefnum sem tekin voru fyrir og rædd heima með barninu
Fyrirkomulag fjarnáms

Fyrri hluti námskeiðsins:

Námskeiðið er á sveigjanlegu formi sem þýðir að þátttakendur fá aðgang að kennsluumhverfinu canvas þar sem námskeiðið er hýst. Þar hafa þátttakendur viku til þess að hlusta á fyrirlestra námskeiðsins og vinna verkefnin, þeir geta hlustað á fyrirlestrana/unnið verkefnin þegar þeim hentar í þessa einu viku. Canvas kennsluumhverfið opnast á fyrsta degi námskeiðsins. 

Að viku liðinni þá hittast þátttakendur í rauntíma á zoom fundi með ráðgjafa MSHA frá kl. 14-16 þar sem farið verður yfir umræðufundina sem þátttakendur nýta síðan með nemendahópum.

Þátttakendur vinna með verkfæri námskeiðsins (10 umræðufundir) hver í sínum skóla eftir fyrri hluta námskeiðsins.


Milli námskeiðshluta:

Notast verður við zoom fyrir ráðgjafafund eftir að þátttakendur er búnir að halda 3-4 fundi með nemendahópum. Ráðgjafafundurinn er í rauntíma og er maður á mann.


Seinni hluti námskeiðsins:

Seinni námskeiðsdagur er eins uppbyggður og fyrri námskeiðsdagur, þ.e. þátttakendur hlusta á fyrirlestra á canvas og þeir hafa viku til þess að hlusta á fyrirlestrana. Að viku lokinni þá hittast þátttakendur ásamt ráðgjafa MSHA í rauntíma á zoom frá klukkan 14:00-16:00.

 

Inntökuskilyrði

Kennarar

Sérkennarar

Þroskaþjálfar

Náms- og starfsráðgjafar

Félagsráðgjafar

Tómstunda- og félagsmálafræðingar 

Dagskrá

Fjarnám

Fyrri hluti - þátttakendur hlusta á efni á vef

25. september - 2. október.

Fyrri námskeiðsdagur í rauntíma á Zoom
2. októbber 14:00-16:00.

Vinna þátttakenda með nemendum
Þátttakendur vinna með verkfæri námskeiðsins (10 umræðufundir) hver í sínum skóla eftir fyrri hluta námskeiðsins.

Þátttakendur geta bókað ráðgjafarfund einu sinni á skólaárinu. 


Seinni hluti - þátttakendur hlusta á efni á vef
12. mars 2024 - 19. mars 2024

Seinni námskeiðsdagur í rauntíma á Zoom
19. mars, frá klukkan 14:00-16:00.

Kennarar

Sigríður Ingadóttir, sérfræðingur við Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri

Kostnaður

54.000 kr.

Innifalið er námskeiðið, öll námskeiðsgögn og ráðgjöf á milli námskeiðshluta. Þátttakendur fá aðgang að öllu efni sem til þarf að halda fundi með nemendahópum.

Umsagnir um námskeið

Frábært efni til að nota í lífsleikni. Hjálpar mér í þeim tímum, eflir mig og ég verð öruggari.

Skýr verkfæri til að vinna með samskipti barna, góðar útskýringar.

Góður grunnur að byggja á og útvíkka eða aðlaga mismunandi bekkjarhópum.

Gott verkfæri til að nemendur læri samskipti og læri á sig sjálf.

Vel upp sett, faglegt, mikið efni sem við fáum á námskeiðinu.

Upphafsdagur

There a no startdates for this programme yet.

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða