fbpx

Læsisráðstefna í HA 2024 – Hvað er að vera læs?

- Miðstöð Skólaþróunar

Yfirlit

Ráðstefnan Hvað er að vera læs?
Laugardaginn 14. september

Ráðstefna um menntavísindi á vegum Menntamálastofnunar  og Miðstöðvar skólaþróunar verður haldin  í Háskólanum á Akureyri 14. september 2024.

Á ráðstefnunni verður fjallað um læsi í víðum skilningi og hvernig huga þarf að öllum þáttum læsis í kennslu s.s. lesskilningi, ritun, munnlegri og skriflegri tjáningu og miðlun. Auk aðalfyrirlesara verða málstofuerindi og vinnustofur þar sem kynntar verða aðferðir og reifuð ýmis mál er lúta að læsi. Ráðstefnan er ætluð kennurum á öllum skólastigum og verður sérstaklega horft til þess að viðfangsefni ráðstefnunnar hafi hagnýtt gildi fyrir kennara.

Hagnýtar upplýsingar

Viðburðurinn verður haldinn í Háskólanum á Akureyri. 

Inntökuskilyrði

Öll velkomin. 

Dagskrá

Aðalfyrirlesarar ráðstefnunnar verða:

  • Bragi Valdimar Skúlason fjölmiðlamaður, orðarýnir og orðasmiður.

  • Guðmundur Engilbertsson deildarforseti við kennaradeild HA sem mun fjalla um læsi á stigi djúp- og yfirfærslunáms á efri skólastigum.

 

Auk þrískiptra erinda eftir skólastigum:

  • Jóhanna Thelma Einarsdóttir prófessor við heilbrigðisvísindasvið HÍ sem mun fjalla um stöðu fjöltyngdra leikskólabarna á Íslandi.

  • Auður Soffíu Björgvinsdóttir aðjúnkt og doktorsnemi við menntavísindasvið HÍ og Guðbjörg R. Þórisdóttir læsisráðgjafi hjá MMS sem munu fjalla um mikilvægi sveigjanleika í heimalestrarþjálfun út frá stöðu nemenda í lestri.

  • Ívar Rafn Jónsson lektor við HA sem mun fjalla um læsi framhaldsskólanema á orðræðu og hugtakanotkun sem er við lýði í námsmati. 

 

Auk aðalfyrirlestra verða bæði málstofuerindi og vinnustofur þar sem reifuð verða ýmis mál er lúta að læsi.

Kostnaður

Verð á ráðstefnu 15.000 kr. 

Ef þátttakendur hafa einnig áhuga á að fara á námstefnu í Byrjendalæsi á föstudeginum 13. september, þá er heildargjaldið kr. 20.000 - hægt er að skrá sig á báða viðburði með því að smella á þennan hlekk: Skráningarhlekkur fyrir bæði námstefnuna og ráðstefnuna

Þeir sem ætla aðeins að fara á ráðstefnuna á laugardeginum smella á rauða hnappinn hér fyrir neðan til að skrá sig. 

 

Upphafsdagur
Upphafsdagur14 Sep 24
TímalengdMiðstöð Skólaþróunnar
Verðkr 15.000

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða