fbpx

Mannkostamenntun

- Miðstöð Skólaþróunar

Yfirlit

Námskeiðið er starfstengt 10 eininga ECTS námskeið á meistarastigi. Kennsla fer fram á tveimur misserum og ljúka nemendur náminu á einu skólaári. Gert er ráð fyrir því að þátttakendur séu starfandi kennarar í leik-, grunn-, eða framhaldsskólum og hafi möguleika á að tengja námið við starfsvettvang. 

Meginmarkmið námsins er að veita nemendum þekkingu á mannkostamenntun og dygðasiðfræði, leikni í að vinna með viðfangsefnið í kennslu og hæfni til að miðla því til nemenda sinna í leik-, grunn- og framhaldsskólum. Lögð er áhersla á að vinna með sjálfstæða hugsun og hvernig skynsemin getur hjálpað einstaklingum að öðlast þekkingu og visku sem nýtist þeim í lífinu.  

Námskeiðið er á meistarastigi og kennt í gegnum vefinn. Þátttakendur fá þjálfun í að gera starfendarannsókn þar sem þeir innleiða mannkostamenntun í kennslu á vettvangi. Þátttakendur munu skoða og greina eigin starfskenningu og reynslu í þeim tilgangi að þróa og bæta eigið starf og skapa nýja þekkingu. 

Mannkostamenntun er hægt að flétta inn í allar námsgreinar í gegnum formlegt og óformlegt nám.

Hagnýtar upplýsingar

Mannkostamenntun byggir á hagnýtri siðfræði og hugmyndum um að með því að rækta siðferðisþroska nemenda og efla dygðalæsi þeirra sé lagður grunnur að farsælu lífi. Nemendur fá tækifæri til að leggja rækt við eigin þroska og vinna að því takmarki að verða góðar manneskjur sem taka skynsamlegar ákvarðanir. 

Áhersla er lögð á persónulega nálgun og að hver og einn fái tækifæri til að efla mannkosti sína og farsæld í gegnum námið. 

Auðvelt er að tengja grunnþætti menntunar og þann boðskap sem þeir bera um að mennta gagnrýna, virka og hæfa þátttakendur í lýðræðissamfélagi við hugmyndafræðina sem liggur á bak við mannkostamenntunina. Viðfangsefni mannkostamenntunar koma því inn á alla grunnþætti menntunar sem tilgreindir eru í aðalnámskrá.

Fyrirkomulag fjarnáms

Námið er kennt í fjarnámi.

Nemendur mæta í rafrænar lotur (kynningu, 3 lotur á haustmisseri og 2 lotur á vormisseri) og nýta þess á milli Canvas kennslukerfið til að hlusta á fyrirlestra, taka þátt í samræðum og vinna verkefni. 

Haustmisseri

Kynning á námskeiði - Fimmtudaginn 5. september 15:00-16:00
Lota 1 - Miðvikudagur 2. október 14:00-16:00
Lota 2 - Þriðjudagur 5. nóvember 14:00-16:00
Lota 3 - Föstudagur 22. nóvember 12:30-16:00

Vormisseri
Lota 4 - Miðvikudagur 15. janúar 2025 14:30-16:00
Lota 5 - Fimmtudagur 15. maí 2025 14:00-16:00

Efnisskrá

Á haustmisseri verður fjallað um dygðasiðfræði og mannkostamenntun og farið yfir helstu hugtök, kenningar og rannsóknir sem tengjast viðfangsefninu. Áhersla verður lögð á að nemendur læri kennsluaðferðir sem miða að því að efla skilning nemenda í leik-, grunn- og framhaldsskólum á viðfangsefninu. Sérstök áhersla verður lögð á samræður sem kennsluaðferð. Áhersla verður lögð á hvernig nemendur í námskeiðinu geta komið til móts við fjölbreyttan nemendahóp í skólum með sveigjanlegu skipulagi og fjölbreyttum kennsluaðferðum. 

Nemendur nýta þá þekkingu, leikni og hæfni sem þeir hafa öðlast á hausmisseri til að innleiða hugmyndafræði mannkostamenntunar í eigin kennslu. Nemendur gera starfendarannsókn þar sem þeir vinna með viðfangsefni mannkostamenntunar með nemendum sínum, safna gögnum, greina þau, túlka og leita leiða til að gera betur.  

Inntökuskilyrði

Kennarar og stjórnendur í leik- grunn-, framhalds- og háskólum. Náms- og starfsráðgjafar og aðrir háskólamenntaðir sem stunda kennslu eða vinna með nemendum eru hvattir til að sækja námskeiðið.

Umsækjandi þarf að hafa leyfisbréf til kennslu og hafa starfað við kennslu í a.m.k. tvö ár. Umsóknir sem ekki teljast uppfylla almenn inntökuskilyrði eru metnar sjálfstætt. Því er mikilvægt að umsækjendur sem ekki uppfylla almenn inntökuskilyrði skili viðbótarupplýsingum, til dæmis kynningarbréfi ásamt upplýsingum um fyrra nám. 

Dagskrá

Námskeiðið er kennt alfarið í gegnum vefinn. 

Kennsla í námskeiðinu verður með fjölbreyttum hætti í formi fyrirlestra, umræðna, verkefnavinnu og fjarfunda. Lögð er áhersla á kennsluhætti sem hvetja til virkrar þátttöku nemenda. 

Námskeiðið er vettvangs- og starfsmiðað. Þátttakendur fá þjálfun í að gera starfendarannsókn þar sem þeir innleiða mannkostamenntun í kennslu á vettvangi.

Kennarar

Sigríður Ingadóttir, sigriduri@unak.is 
Íris Hrönn Kristinsdóttir, iris@unak.is 

Kostnaður

Verð fyrir skólaárið 2024-2025 er 250.000 kr. 

Upphafsdagur
Upphafsdagur02 Sep 24
TímalengdMiðstöð Skólaþróunnar
Verðkr 250.000

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða