fbpx

Námstefna í Byrjendalæsi og læsisráðstefnan Hvað er að vera læs?

- Miðstöð Skólaþróunar

Yfirlit

Námstefna í Byrjendalæsi og ráðstefnan Hvað er að vera læs?
13. og 14. september í Háskólanum á Akureyri 

 

Námstefna í Byrjendalæsi
Föstudaginn 13. september

Föstudaginn 13. september 2024 heldur Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri námstefnu um Byrjendalæsi. Á námstefnunni koma saman kennarar sem kenna börnum á yngsta stigi grunnskóla með kennsluaðferðinni Byrjendalæsi og áhugafólk um læsi á yngsta stigi grunnskólans.

Í Byrjendalæsi er lögð áhersla á að börn kynnist áhugaverðum bókmenntum og fræðitextum. Barnabókmenntir og aðrir gæðatextar eru nýttir í lestrarkennslunni til að kenna tengsl stafs og hljóðs, efla lesskilning og kveikja áhuga barna á lestri og bókmenntum.

Á námstefnunni gefst kennurum tækifæri til að hittast, hlusta á áhugaverða fyrirlestra, deila hugmyndum og ræða saman.
 

Ráðstefnan Hvað er að vera læs?
Laugardaginn 14. september

Ráðstefna um menntavísindi á vegum Menntamálastofnunar  og Miðstöðvar skólaþróunar verður haldin  í Háskólanum á Akureyri 14. september 2024.

Á ráðstefnunni verður fjallað um læsi í víðum skilningi og hvernig huga þarf að öllum þáttum læsis í kennslu s.s. lesskilningi, ritun, munnlegri og skriflegri tjáningu og miðlun. Auk aðalfyrirlesara verða málstofuerindi og vinnustofur þar sem kynntar verða aðferðir og reifuð ýmis mál er lúta að læsi. Ráðstefnan er ætluð kennurum á öllum skólastigum og verður sérstaklega horft til þess að viðfangsefni ráðstefnunnar hafi hagnýtt gildi fyrir kennara.

Hagnýtar upplýsingar

Viðburðirnir verða haldnir í Háskólanum á Akureyri. 

Inntökuskilyrði

Öll velkomin. 

Dagskrá

Aðalfyrirlesarar námstefnunnar verða:

  • Bergrún Íris Sævarsdóttir rit- og myndhöfundur, fjallar um myndlæsi.
  • Guðmundur Engilbertsson læsisfræðingur og deildarforseti við kennaradeild HA fjallar um hvernig hugmyndir um læsi hafa þróast og hvernig hægt er að haga námi og þannig að það stuðli að læsi til nútíðar og framtíðar.
  • Dr. Rannveig Oddsdóttir dósent við kennaradeild HA fjallar um niðurstöður rannsóknar á lestrarfærni barna í 1.–2. bekk í Byrjendalæsisskólum.


Aðalfyrirlesarar ráðstefnunnar verða:

  • Bragi Valdimar Skúlason fjölmiðlamaður, orðarýnir og orðasmiður.

  • Guðmundur Engilbertsson deildarforseti við kennaradeild HA sem mun fjalla um læsi á stigi djúp- og yfirfærslunáms á efri skólastigum.
     

Auk þrískiptra erinda eftir skólastigum:

  • Jóhanna Thelma Einarsdóttir prófessor við heilbrigðisvísindasvið HÍ sem mun fjalla um stöðu fjöltyngdra leikskólabarna á Íslandi.

  • Auður Soffíu Björgvinsdóttir aðjúnkt og doktorsnemi við menntavísindasvið HÍ og Guðbjörg R. Þórisdóttir læsisráðgjafi hjá MMS sem munu fjalla um mikilvægi sveigjanleika í heimalestrarþjálfun út frá stöðu nemenda í lestri.

  • Ívar Rafn Jónsson lektor við HA sem mun fjalla um læsi framhaldsskólanema á orðræðu og hugtakanotkun sem er við lýði í námsmati. 


Auk aðalfyrirlestra verða bæði málstofuerindi og vinnustofur þar sem reifuð verða ýmis mál er lúta að læsi.

 

Kostnaður

Verð á námstefnu er 8.000 kr.
Verð á ráðstefnu er 15.000 kr. 

Gefinn er afsláttur fyrir þá sem mæta á báða viðburðina og er kostnaður þá 20.000 kr. 

Upphafsdagur
Upphafsdagur13 Sep 24
TímalengdMiðstöð Skólaþróunnar
Verðkr 20.000

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða