fbpx

NodeJS bakendaforritun

- Forritun og tölvur

Yfirlit

Á þessu námskeiði verður fjallað um JavaScript forritunarmálið og því beitt ásamt NodeJS umhverfinu og MongoDB gagnagrunnskerfinu til að skapa forrit sem hægt er að nýta sem grunnstoð fyrir vefsíðu, app, tölvuleik eða hvað sem er á vefnum.

Þetta námskeið er verkefnadrifið og felst mest allur lærdómur í því að leysa verkefni.

Þetta námskeið hentar vel fyrir fólk sem hefur grunnþekkingu á JavaScript forritunarmálinu eða almennri forritun og vill taka þá þekkingu á næsta stig. Góður undanfari fyrir þetta námskeið er Inngangur í vefforritun eða Inngangur í almenna forritun. Hægt er að finna þau námskeið hér.

Fyrirkomulag fjarnáms

Námskeiðið er að fullu í fjarnámi

Efnisskrá

Það verða myndbönd á íslensku, glærur, verkefni og annað hjálparefni á kennsluvef HA. Einnig mun fólk hafa aðgang að umræðuvefnum Discord þar sem það getur sent inn spurningar og fengið aðstoð frá leiðbeinanda og samnemendum. Allar verkefnalausnir eru í formi myndbanda og einnig verður allur kóði námskeiðsins aðgengilegur.

Gert er ráð fyrir því að fólk eyði a.m.k. 10 tímum á viku í námskeiðið.

Dagskrá

Námskeiðið er alls 3 vikur.

Kennarar

Umsjónamaður: Ólafur Jónsson – Verkefnastjóri tölvunarfræðináms við HA
Kennari: Rúnar Vestmann – Nemandi í tölvunarfræði.

Kostnaður

Skráningargjald er kr. 18000.- sem greiðist með kreditkorti við skráningu eða kröfu í heimabanka fyrir upphaf námskeiðs.

 

Upphafsdagur

There a no startdates for this programme yet.

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða