fbpx

Nýttu verkfærakistu Google fyrir skjölin þín, myndirnar og samskiptin

- Gagnaúrvinnsla

Yfirlit

Námskeið óháð staðsetningu - í fjarkennslu.

Sístækkandi hópur einstaklinga og fyrirtækja þarf að koma samskiptum sínum og gögnum fyrir í „skýjunum“ í kjölfar aukinnar notkunar snjallsíma og taflna, þar sem geymslupláss er ekki kostur. Í skýjunum geturðu tekið upp nútímavinnubrögð með deilingu upplýsinga og samstarf margra samtímis.
Risarnir þrír, Apple, Microsoft og Google bjóða upp á lausnir við þessum vanda. Á þessu námskeiði öðlast þú grunnfærni í því að nota Google kerfið til að vinna, geyma og deila gögnum, myndum og upplýsingum. Ef þú veist ekki hvað þú átt að gera við myndirnar þínar, sem núna eru á símanum/töflunni, ef þú vilt deila skjölum á hraðan og einfaldan hátt, ef þú vilt spjalla og vinna í upplýsingum á sama tíma, ef þú vilt skipuleggja þig heima og í vinnu, þá er þetta námskeið hannað fyrir þig.
Google býður uppá heila gullakistu verkfæra, sem allt of fáir nýta sér. Kerfið er sveigjanlegt og einfalt í notkun og leysir margan nútímavandann eins og deilingar, samstarf og geymslupláss. Google er eins og aðrir, sífellt að breyta og bæta við virkni og því er gott að vera “uppfærður”.

Fyrir hverja:

Fyrir einstaklinga, félagasamtök, fólk hjá fyrirtækjum og flest alla þá sem hafa áhuga á að læra að nýta sér verkfærakistu Google og auðvelda sér lífið. Námskeiðið er grunnnámskeið og miðað út frá byrjendum.

Námskeiðið er byrjendanámskeið, en ef þú hefur notað gmail í langan tíma og ekki kynnt þér önnur verkfæri Google, ættir þú endilega að mæta.

Ávinningur þinn:

• Auðveldar flutning yfir í „skýin“.
• Þú öðlast grunnfærni í notkun Google meginverkfæra.
• Þú losnar við vesen í sambandi við geymslupláss og deilingar á efninu sem þú ert að taka upp á símann eða töfluna þína.
• Þú sparar óhemju tíma með nútímavinnubrögðum.

Aðrar upplýsingar:

Á námskeiðinu er blandað saman aðferðum við vinnu frá tölvu og snjallsíma (iphone/Android). Útgangspunkturinn er vinna á tölvunni vegna stillingaratriða og því er ágætt ef þátttakendur hafa með sér tölvu með og að þeir hafi hlaðið niður Chrome vafranum, sem vinnur best með Google.
Þátttakendur eiga að hafa skráð Gmail fyrir námskeiðið og hafa sett upp viðeigandi Apps (gmail, drive, dagatal, docs, photos) á snjallsímann/töfluna. Námsefnið er nýuppfært miðað við tækni og möguleika hverju sinni.
Þátttakendur geta fengið aðstoð við gmail skráninguna og að sækja Apps áður en námskeiðið hefst á námskeiðsdegi. Ef þátttakandi vill nýta sér það þá vinsamlega taka það fram við skráningu á námskeiðið.

Efnisskrá

Á námskeiðinu er fjallað um:

• Hvað er hvað í verkfærakistu Google (gmail, drive, docs, photos, hangouts, dagatal).
• Hvernig geymslukerfið nýtist, hvernig samskiptakerfið nýtist sem og skipulagið.
• Auðveldari deilingu efnis, t.d. á myndum og skjölum.

Gmail, sem fyrsta skref í átt að skýjunum.
Drive, sem er “harði diskurinn” þinn og geymslupláss í „skýjunum“.
Google docs, hvar eru verkfærin og hvernig nýti ég þau í stað þess að vera bundin af „office-pakka“?
- Hugmyndafræðina um deilingu gagna og samvinnu í sameiginlegum upplýsingum og við tökum litlar verklegar æfingar.
- Að leysa vandamálið með myndirnar þínar á símanum/töflunni með því að hlaða beint upp í „drive“ eða „Google myndir“ - geymdu og deildu eins og þig lystir.

 

Dagskrá

Tími: Fim. 3. okt. kl. 19-22.
Staður: L203 á Sólborg HA - 2. hæð.

Kennarar

Maríanna Friðjónsdóttir, sjálfstætt starfandi fjölmiðlari. Hún hefur frá árinu 2008 kennt hundruðum viðskiptavina Endurmenntunar og Símenntunar HA (auk sérsniðinna námskeiða og fyrirlestra) að nýta samfélagsmiðla og Facebook fyrir fyrirtæki í samskiptum og markaðssetningu. Nánari upplýsingar: webmom.eu

Kostnaður

Verð:
Skráning fyrir 15. september 15.000 kr.
Skráning eftir 5. september 17.000 kr.

Umsagnir um námskeið

Hvað lært:

·  stillingar, g-mail, phptos, slides
·  allt varðandi google
·  hef fengið sjálfstraust í efninu
·  að dýpka og víkka mig í google
·  dagatal, myndir á skýið
·  flest  allt sem Google hefur að geyma
   aðgang að nýju vinnutæki

Upphafsdagur

There a no startdates for this programme yet.

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða