fbpx

Samskipti stúlkna

- Miðstöð Skólaþróunar

Yfirlit

Námskeiðið Samskipti stúlkna - leið til lausna er hagnýtt og árangursríkt verkefni sem hægt er að vinna með stúlkum í 5.-10. bekk til þess að stuðla að jákvæðum samskiptum í stúlknahópum.

Námskeiðið er fyrir alla sem starfa með stúlkum á þessum aldri. 

Hagnýtar upplýsingar

Námskeiðið byggir á hugmyndum bandarísku sérfræðinganna Julaine Field, Jered Kolbert, Laura Crothers og Tammy Hughes. Þau hafa sett saman áætlun fyrir skóla um hvernig vinna má með stúlkur sem eiga í samskiptavanda. Áætlunin byggir á ákveðnu skipulagi sem hægt er að nýta með stúlknahópum.

Lýsing:
Samskipti stúlkna - leið til lausna er samræðu- og samskiptaverkefni ætlað stelpum á mið- unglingastigi grunnskóla (5.-10. bekk). Það er bæði hugsað sem fyrirbyggjandi og einnig til þess að vinna úr samskiptavanda sem er til staðar. Verkefnið samanstendur af 10 spjallfundum og er hvert spjall 40 mínútna langt.

Markmið:
Þátttakendur:
Öðlast þekkingu á fræðilegum grunni efnisins.
Leikni til þess að halda og leiða samræðu- og samskiptafundi með stúlknahópum.

Félagsleg færni stúlknanna er efld með samskiptavinnu og þær fá tækifæri til að ræða saman um þau félagslegu skilaboð sem ætluð eru ungum konum/stelpum í dag, um mikilvægi félagstengsla, sjálfvirðingar og félagslegrar samkenndar. Stúlkurnar fá þjálfun í að hugsa á gagnrýninn hátt um samskipti sín, hvernig þær tengjast hver öðrum og þeim er gefið tækifæri til að tala um reynslu sína um leið og þær læra að takast á við árekstra og samkeppni við jafningjana.

Fyrirkomulag fjarnáms

Fyrsti hluti
Fyrirlestrar og verkefni á vef (4,5 klst.)
Ráðgjafafundur í rauntíma með kennara námskeiðsins (2 klst.)

Annar hluti 
Ráðgjafafundur fyrir hvern og einn þátttakanda í rauntíma með kennara námskeiðsins (30 mín.), haldinn eftir að þátttakendur hafa haldið 3-4 fundi með stúlkum. 

Þriðji hluti 
Fyrirlestrar og verkefni á vef (1-2 klst.)
Ráðgjafafundur í rauntíma með kennara námskeiðsins (1-2 klst.)

Inntökuskilyrði

Námskeiðið er fyrir alla sem starfa með stúlkum í 5.-10. bekk og hefur það verið vinsælt hjá kennurum, náms- og starfsráðgjöfum, tómstunda- og félagsmálafræðingum, félagsráðgjöfum og starfsfólki í félagsmiðstöðvum. 

Dagskrá

Fyrri hluti 

31. október - 7. nóvember 2023

Fyrirlestrar á vef - þátttakendur hafa viku til að hlusta á fyrirlestra. 

7. nóvember 2023
Ráðgjafafundur með kennara námskeiðsins frá klukkan 14:00-16:00 á zoom.


Samræðuverkefni unnið með nemendum 

8. janúar 2024 - apríl 2024
Þátttakendur vinna með stúlknahópum og fara í gegnum umræðuverkefnin. Boðið verður upp á ráðgjafafund fyrir hvern og einn þátttakanda á þessu tímabili. 


Seinni hluti

3. apríl - 10. apríl 2024
Fyrirlestrar á vef - þátttakendur hafa viku til að hlusta á fyrirlestra. 

10. apríl 2024
Ráðgjafafundur með kennara námskeiðsins frá klukkan 14:00-16:00 á zoom.

Kennarar

Nánari upplýsingar veitir:  
Sigríður Ingadóttir, sigriduri@unak.is, 460 8591

Kostnaður

54.000 kr.

Innifalið er námskeiðið, öll námskeiðsgögn og ráðgjöf á milli námskeiðshluta. Þátttakendur fá aðgang að öllu efni sem til þarf að halda fundi með nemendahópum.

Umsagnir um námskeið

Umsagnir „viðskiptavina“:
„Gott að fá verkfæri í hendurnar“
„Vekur okkur til umhugsunar um samskiptin. Frábær verkfæri“
„Praktískt“
„Fínt námskeið“
„Hagnýtt“

Upphafsdagur

There a no startdates for this programme yet.

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða