fbpx

Stafræn nærvera í fjarþjónustu

- 100% fjarnám

Yfirlit

Markmið námskeiðsins er að veita þátttakendum verkfæri sem þeir geta nýtt sér til að vera sem best til staðar fyrir sína viðskiptavini, sem sumir hverjir eiga erfitt með þessa leið samskipta og fyrir aðra er jafnvel alveg ný – að minnsta kosti í því umfangi og samhengi sem hún nú er.

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • hvernig við tryggjum sem best góða nærveru í fjarþjónustu við viðskiptavini
  • hvaða áskoranir fylgja því að samskipti fari fram t.d. í myndsamtali eða símtali og jafnvel með spjallforritum eða tölvupóstum
  • við skoðum það hverju þarf að huga að þegar við færum okkur í stafræna miðlun.
Fyrirkomulag fjarnáms

Námskeiðið verður kennt í gegnum Zoom og fólk mætir á ákveðnum tíma í tölvunni til að taka þátt – tímar verða ekki teknir upp eða gerðir aðgengilegir eftirá.
Mikil áhersla er lögð á þátttöku allra í umræðum og fer kennslan fram með stuttum innlögnum frá kennara og umræðum þátttakenda.
Glærur verða sendar í tölvupósti á alla þátttakendur.

Efnisskrá

Á námskeiðinu er fjallað um það hvernig tryggjum við sem best góða nærveru í fjarþjónustu við viðskiptavini. Hvaða áskoranir fylgja því að samskipti fari fram t.d. í myndsamtali eða símtali og jafnvel með spjallforritum eða tölvupóstum. Við skoðum það hverju þarf að huga að þegar við færum okkur í stafræna miðlun. 

Dagskrá

Tími: Þri. 15. sept. kl. 13-14.

Kennarar

Ingibjörg Þórðardóttir félagsráðgjafi, MA. Hefur lokið diplómanámi frá Bretlandi í ráðgjöf og meðferð með fjarþjónustu (online counselling and psychotherapy). Hún hefur langa reynslu af því að vinna með þolendum ofbeldis og aðstandendum þeirra meðal annars í Kvennaathvarfinu, Stígamótum og Aflinu á Akureyri. Ingibjörg hefur haldið sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir konur og stúlkur auk ýmis konar kennslu, bæði á sviði fjarþjónustu og um ofbeldi. Þá hefur hún haft með höndum ýmiss konar ráðgjöf fyrir einstaklinga og fjölskyldur. Ingibjörg rekur félagsráðgjafarstofuna Hugrekki – ráðgjöf og fræðslu, þar sem boðin er samtalsmeðferð, öll almenn félagsráðgjöf og ýmis konar námskeið. Þá er Ingibjörg einnig frumkvöðull í því að bjóða samtalsmeðferð í fjarheilbrigðisþjónustu.

Kostnaður

Verð: 6000 kr.

Upphafsdagur

There a no startdates for this programme yet.

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða