-
Tímalengd
13 klstNámsskeiðs gjald
kr 3.000
Yfirlit
Undirbúningsnámskeið í almennri efnafræði verður haldið 16.- 22. ágúst.
Í námskeiðum í auðlindafræði, heilbrigðis- og kennaradeildum er gert ráð fyrir að nemendur hafi þessa grunnþekkingu.
Fyrirkomulag fjarnáms
Námskeiðið er í fjarkennslu og þannig aðgengilegt fyrir alla, óháð staðsetningu, sem skrá sig og greiða námskeiðsgjald.
Efnisskrá
Námslýsing: Fjallað verður um grundvallaratriði í ólífrænni efnafræði. Byggingu atóma, lotukerfið, efnatengi, efnahvörf, magnútreikninga, kjörgös, redox hvörf, sýrur og basa.
Námsmat: Þar sem hér er um undirbúningsáfanga að ræða sem ekki gefur námseiningar verður ekki um sérstakt námsmat að ræða. Það er hinsvegar mikilvægt fyrir nemendur með lítinn eða engan undirbúning í efnafræði að sækja þetta námskeið og nýta tímann vel.
Lesefni: Fyrirlestra- og dæmahefti, tekið saman af kennara, sem sent verður nemendum rafrænt í kjölfar greiðslu námskeiðsgjalds.
Dagskrá
Námskeiðið stendur í eina viku frá 16. - 22. ágúst.
Kennarar
Kennari: Árný I. Brynjarsdóttir, efnafræðikennari.
Kostnaður
Skráningargjald er kr. 3000.- sem greiðist með kreditkorti við skráningu eða kröfu í heimabanka fyrir upphaf námskeiðs.
Nemendur sem eru innritaðir á vormisseri 2021 við HA þurfa ekki að greiða skráningargjald.
Ath. Fyrirvari er um að námskeiðið getur fallið niður ef þátttaka er ekki nægileg.
Upphafsdagur
There a no startdates for this programme yet.
Áhugavert námskeið sem vert er að skoða