fbpx

Aðfaranámskeið – Stærðfræði

- Sumarskóli

  • Næsta námskeið hefst
    01 Jan 70
    Allir upphafsdagar
  • Tímalengd
    6 klst
  • Námsskeiðs gjald
    kr 3.000
Yfirlit

Undirbúningsnámskeið í stærðfræði hefst 9. ágúst. 

Í námskeiðum viðskipta-, raunvísinda- og kennaradeilda er gert ráð fyrir að nemendur hafi þessa grunnþekkingu. Námskeiðið er ekki síst ætlað nemendum sem hafa útskrifast úr framhaldsskóla með fáar einingar í stærðfræði.

Fyrirkomulag fjarnáms

Námskeiðið er í fjarnámi og þannig aðgengilegt fyrir alla, óháð staðsetningu, sem skrá sig og greiða námskeiðsgjald.

Efnisskrá

Námslýsing: Fjallað verður um tölur, reikniaðgerðir, +og –, almenn brot, mengi, hnitakerfi, línur, bókstafareikning (algebru), jöfnur, ójöfnur, föll, hornaföll, flatarmál og rúmmál.

Námsmat:  Þar sem hér er um undirbúningsáfanga að ræða sem ekki gefur námseiningar verður ekki um sérstakt námsmat að ræða. Það er hinsvegar mikilvægt fyrir nemendur með lítinn undirbúning í því sem talið er upp í námslýsingu og þá sérstaklega þeir sem ekki eru sleipir í bókstafareikningi og notkun falla að sækja þetta námskeið og nýta tímann vel.

Lesefni: Glósur og dæmi frá kennara sem nemendur fá aðgang að í byrjun námskeiðs. Annað efni sem gott getur verið að líta í eru þær bækur sem kenndar eru í stærðfræði í framhaldsskólum t.d. STÆ 102/103 202/203.

Dagskrá

Námskeiðið stendur í eina viku frá 9.- 15. ágúst.

Kennarar

Guðmundur Kristján Óskarsson dósent við viðskiptadeild.

Kostnaður

Skráningargjald er kr. 3000.- sem greiðist með kreditkorti við skráningu eða kröfu í heimabanka fyrir upphaf námskeiðs.

Nemendur sem eru innritaðir á vormisseri 2021 við HA þurfa ekki að greiða skráningargjald.
Ath. Fyrirvari er um að námskeiðið getur fallið niður ef þátttaka er ekki nægileg.

Upphafsdagur

There a no startdates for this programme yet.

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða