fbpx

Unglingaspjall

- Miðstöð Skólaþróunar

Yfirlit

Meginmarkmið Unglingaspjalls er að þátttakendur þjálfist í og læri að taka þátt í samræðum og byggi undir hæfni sem nýtist þeim í daglegum samskiptum. Fundir Unglingaspjallsins taka á ýmsum viðfangsefnum eins og sjálfstyrkingu, tjá skoðanir sínar og virða skoðanir annarra og efla samskiptahæfni.

Samræðu- og samskiptafundirnir eru helgaðir hópeflisleikjum og fjölbreyttum verkefnum. Hver fundur felur í sér:

– Hópeflisleik
– Viðfangsefni
– Spjall um viðfangsefni
– Verkefnavinnu
– Millifundaverkefni
– Samantekt

Unglingarnir setja sér markmið á fundunum og vinna að því markmiði á milli funda. Undirstaða fundanna er sett strax á fyrsta fundi þar sem samskipta- og samræðuviðmið eru sett af hópnum. Verkefnið fellur vel bæði að lykilhæfniviðmiðum Aðalnámskrár grunnskóla og hæfniviðmiðum samfélagsgreina sem snýr að lífsleikni og siðfræði.

Hagnýtar upplýsingar

Markhópur:
Grunnskólakennarar á mið- og unglingastigi og námsráðgjafar.
 

Lýsing:
Unglingaspjall er samræðu- og samskiptaverkefni ætlað nemendum á mið- unglingastigi grunnskóla (7. -10. bekk). Verkefnið er til að auka samræðu- og samskiptahæfni nemenda. Námskeiðið er bæði hugsað sem fyrirbyggjandi og einnig til þess að vinna úr samskiptavanda sem er til staðar.


Markmið:

Þátttakendur:

  • Öðlast þekkingu á fræðilegum grunni efnisins.
  • Fá verkfæri í hendurnar til þess að vinna með þætti lykilhæfni í skólastarfi.
  • Leikni til þess að halda og leiða samræðu- og samskiptafundi með nemendahópnum.

Ávinningur skóla – nemenda – foreldra:

  • Félagsleg færni nemenda er efld með samskiptavinnu og þeir fá tækifæri til að ræða saman um þau félagslegu skilaboð sem ætluð eru ungu fólki í dag, mikilvægi félagstengsla, sjálfvirðingar og félagslegrar samkenndar.
  • Nemendur fá þjálfun í að hugsa á gagnrýninn hátt um samskipti sín, hvernig þeir tengjast hver öðrum og þeim er gefið tækifæri til að tala um reynslu sína og skoðanir um ýmis samskipta- og álitamál.


Fyrirkomulag:
Verkefnið samanstendur af 10 spjallfundum og er hvert spjall 40-60 mínútna langt. Námskeiðið er þannig uppbyggt að 15 fundir fylgja námskeiðinu og getur hver kennari sett saman það námskeið sem hentar hópnum hverju sinni.

Fyrirkomulag fjarnáms

Fyrri hluti námskeiðsins:

Námskeiðið er á sveigjanlegu formi sem þýðir að þátttakendur fá aðgang að kennsluumhverfinu canvas þar sem námskeiðið er hýst. Þar hafa þátttakendur viku til þess að hlusta á fyrirlestra námskeiðsins og vinna verkefnin, þeir geta hlustað á fyrirlestrana/unnið verkefnin þegar þeim hentar í þessa einu viku. 

Að viku liðinni þá hittast þátttakendur í rauntíma á zoom fundi með ráðgjafa MSHA frá kl. 14-16 þar sem farið verður yfir umræðufundina sem þátttakendur nýta síðan með nemendahópum.

 

Milli námskeiðshluta:

Þátttakendur vinna með verkfæri námskeiðsins (10 umræðufundir) hver í sínum skóla eftir fyrri hluta námskeiðsins.

Notast verður við zoom fyrir ráðgjafafund eftir að þátttakendur er búnir að halda 3-4 fundi með nemendahópum. Ráðgjafafundurinn er í rauntíma og er maður á mann.

 

Seinni hluti námskeiðsins:

Seinni námskeiðsdagur er eins uppbyggður og fyrri námskeiðsdagur, þ.e. þátttakendur hlusta á fyrirlestra á canvas og þeir hafa viku til þess að hlusta á fyrirlestrana.

Að viku lokinni þá hittast þátttakendur ásamt ráðgjafa MSHA í rauntíma á zoom. Canvas kennslukerfið fyrir seinni hluta opnast viku fyrir zoom fundinn með ráðgjafa MSHA. 

 

Efnisskrá

Meginmarkmið Unglingaspjalls er að þátttakendur þjálfist í og læri að taka þátt í samræðum og byggi undir hæfni sem nýtist þeim í daglegum samskiptum. Fundir Unglingaspjallsins taka á ýmsum viðfangsefnum eins og sjálfstyrkingu, tjá skoðanir sínar og virða skoðanir annarra og efla samskiptahæfni. Samræðu- og samskiptafundirnir eru helgaðir hópeflisleikjum og fjölbreyttum verkefnum. Hver fundur felur í sér:

  • Hópeflisleik
  • Viðfangsefni
  • Spjall um viðfangsefni
  • Verkefnavinnu
  • Millifundaverkefni
  • Samantekt

Unglingarnir setja sér markmið á fundunum og vinna að því markmiði á milli funda. Undirstaða fundanna er sett strax á fyrsta fundi þar sem samskipta- og samræðuviðmið eru sett af hópnum. Verkefnið fellur vel bæði að lykilhæfniviðmiðum Aðalnámskrár grunnskóla og hæfniviðmiðum samfélagsgreina sem snýr að lífleikni og siðfræði.

Inntökuskilyrði

Kennarar

Sérkennarar

Þroskaþjálfar

Náms- og starfsráðgjafar

Félagsráðgjafar

Tómstunda- og félagsmálafræðingar 

Dagskrá

Fjarnám

Fyrri hluti - þátttakendur hlusta á efni á vef

6. - 13. febrúar 2024

Fyrri hluti í rauntíma
13. febrúar 2024, frá klukkan 14:00-16:00.

Vinna þátttakenda með nemendum
Þátttakendur vinna með verkfæri námskeiðsins (10 umræðufundir) hver í sínum skóla eftir fyrri hluta námskeiðsins.

Þátttakendur geta bókað ráðgjafarfund einu sinni á skólaárinu. 


Seinni hluti - þátttakendur hlusta á efni á vef
7.- 14. maí 2024

Seinni námskeiðsdagur í rauntíma á Zoom
14. maí 2024, frá klukkan 14:00-16:00.

Kennarar

Sigríður Ingadóttir, sérfræðingur við Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri.

Kostnaður

54.000 kr. 

Innifalið er námskeiðið, öll námskeiðsgögn og ráðgjöf á milli námskeiðshluta. Þátttakendur fá aðgang að öllu efni sem til þarf að halda fundi með nemendahópum.

Umsagnir um námskeið

„Að fá aðgengi að tilbúnu efni (pakka) til að nýta, ásamt góðri leiðbeiningu á námskeiðinu. Mjög hagnýtt“

„Efnið er mjög aðgengilegt og stýrir vinnunni mjög vel“

„Mér fannst námskeiðið hæfilega langt, vel framsett, skýrt og skipulagt“

„Vel skipulagt og vel uppsett“

Upphafsdagur

There a no startdates for this programme yet.

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða