fbpx

Unity leikjaforritun

- Forritun og tölvur

Yfirlit

Á þessu námskeiði verður fjallað um C# forritunarmálið og því beitt ásamt Unity leikjavélinni til að skapa tölvuleiki.

Þetta námskeið er verkefnadrifið og felst mest allur lærdómur í því að leysa verkefni.

Þetta námskeið hentar vel fyrir fólk sem hefur grunnþekkingu á leikjagerð eða almennri forritun og vill taka þá þekkingu á næsta stig. Góður undanfari fyrir þetta námskeið er Inngangur í leikjaforritun eða Inngangur í almenna forritun.

ATH: Hægt er að taka námskeiðið eitt og sér eða samhliða námskeiðunum Inngangur í almenna forritun, Inngangur í heim gagnagrunna, Inngangur í leikjaforritun, Inngangur í vefforritun, NodeJS bakendaforritun og React framendaforritun. Hægt er að finna þau námskeið hér.

Fyrirkomulag fjarnáms

Námskeiðið er að fullu í fjarnámi

Efnisskrá

Það verða myndbönd á íslensku, glærur, verkefni og annað hjálparefni á kennsluvef HA. Einnig mun fólk hafa aðgang að umræðuvefnum Discord þar sem það getur sent inn spurningar og fengið aðstoð frá leiðbeinanda og samnemendum. Allar verkefnalausnir eru í formi myndbanda og einnig verður allur kóði námskeiðsins aðgengilegur.

Gert er ráð fyrir því að fólk eyði a.m.k. 10 tímum á viku í námskeiðið.

Dagskrá

Námskeiðið er alls 6 vikur.

Kennarar

Umsjónamaður: Ólafur Jónsson – Verkefnastjóri tölvunarfræðináms við HA
Kennari: Rúnar Vestmann – Nemandi í tölvunarfræði.

Kostnaður

Skráningargjald er kr. 36000.- sem greiðist með kreditkorti við skráningu eða kröfu í heimabanka fyrir upphaf námskeiðs.

 

Upphafsdagur

There a no startdates for this programme yet.

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða