fbpx

Zoom á 90 mínútum

- 100% fjarnám

Yfirlit

Á námskeiðinu verða möguleikar Zoom skoðaðir og hvernig hægt er að nota það til að miðla þekkingu og þjónustu til viðskiptavina og starfsmanna.

Markmið námskeiðsins er að gera starfsmönnum kleift að nýta Zoom sem best og veita þeim öryggi í notkun þess í vinnu sinni.

Fyrirkomulag fjarnáms

Námskeiðið verður kennt í gegnum Zoom og fólk mætir á ákveðnum tíma í tölvunni til að taka þátt – tímar verða ekki teknir upp eða gerðir aðgengilegir eftirá. Eingöngu verður notast við Zoom en glærur verða svo sendar í tölvupósti á alla þátttakendur. Mikil áhersla er lögð á þátttöku allra í umræðum og fer kennslan fram með stuttum innlögnum frá kennara og umræðum þátttakenda.

Efnisskrá

Þátttakendur fá að spreyta sig á notkun Zoom, eins og hægt er, og kynnt verða þau verkfæri sem Zoom færir starfsmönnum í fjarvinnu.

Dagskrá

Námskeiðið er 90 mínútur og er kennt í einni lotu. Þátttakendur eru virkir í æfingum og umræðum námskeiðsins og er innihaldið samkvæmt lýsingu. Námskeiðið verður kennt kl 13:00 – 14:30 í gegnum Zoom.

Kennarar

Ingibjörg Þórðardóttir, félagsráðgjafi MA með starfsleyfi landlæknis til fjarheilbrigðisþjónstu og reksturs starfsstofu. Lauk diploma námi í ráðgjöf og meðferð í fjarþjónustu frá Bretlandi 2018 (online counselling and psychotherapy). Lauk BA og starfsréttindanámi í félagsráðgjöf 2007, MA prófi í félagsráðgjöf 2014 og hefur verið sjálfstætt starfandi frá árinu 2013. Rekur félagsráðgjafastofuna Hugerkki – ráðgjöf og fræðsla, þar sem meðal annars er boðið upp á samtalsmeðferð og alla almenna félagsráðgjöf auk ýmis konar námskeiðahalds. Hefur langa reynslu af því að vinna með þolendum ofbeldis og aðstandendum þeirra. Hefur einnig umtalsverða reynslu af meðferðarvinnu í fjarþjónustu og kennslu fagaðila á því sviði.

Önnur námskeið sem ég hef kennt hjá Símenntun:

Ofbeldi gegn börnum: Bæði sem 4 klst og 8 klst fagnámskeið fyrir alla sem vinna með börnum. Heimilisofbeldi: 4 klst fagnámskeið fyrir aðila í heilbrigðis- og félagsþjónustu.
Fjarþjónusta fagaðila – þjónusta 21. aldarinnar: Fagnámskeið fyrir þá sem vinna ráðgjöf og meðferð í fjarþjónustu.

Námskeið kennt annars staðar:

General Certificate in Online Counselling & Psychotherapy: námskeið í Bretlandi fyrir fagaðila í ráðgjöf og meðferð. Nánari upplýsingar um það námskeið eru á www.acadtherapy.online

Hef auk þess haldið fjölda fyrirlestra fyrir starfsfólk skóla og stofnanna um ofbeldi gegn börnum og verið með ýmis konar sjálfstyrkingarnámskeið fyrir bæði konur og stelpur.

Kostnaður

Kostnaður: 7500kr. 

 

Ef þú vilt skrá þig á öll námskeiðin í einu, er veittur 20% afsláttur með því að skrá sig hér: https://simenntunha.is/namskeid/skraning-a-oll-namskeidin-hja-hugrekki/

Upphafsdagur

There a no startdates for this programme yet.

Áhugavert námskeið sem vert er að skoða