fbpx

Útskrift áttunda vogl hópsins

Við fögnum námslokum hjá áttunda hópnum sem lýkur námi í verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun. Síðast liðinn vetur voru 24 í náminu sem tók óvænta stefnu eins og allt annað í þjóðfélaginu í kjölfar Covid. Í stað þess að koma í HA í námslotu í mars var fjarkennsla með zoom og skírteini send nemendum í námslok í stað hefðbundinnar útskriftar.