fbpx

Útskrift leiðsögumanna

Laugardaginn 18. maí voru 18 leiðsögumenn sem verið hafa í námi í vetur útskrifaðir. Við útskriftina fluttu ávörp: Bragi Guðmundsson í fjarveru háskólarektors, Kristín Hrönn Þráinsdóttir frá samstarfsaðila okkar Leiðsöguskólanum og Þorsteinn McKinstry stjórnarmaður í Leiðsögn félagi leiðsögumanna. Tónlist flutti Daniele Basini gítarleikari. Ávarp fyrir hönd nemenda flutti Jónína Sveinbjörnsdóttir. Viðurkenningu fyrir góðan námsárangur hlaut Renate Kienbacher.